Ég nældi mér í tölvuleik nokkran er nefnist því óvenjulega og jafnframt framandi nafni Baldur´s Gate 2 Throne of Bhaal. Er ég tók upp þráðinn þar sem ég lagði hann síðast sem var í Baldur´s Gate 2 Shadow of Amn, þá um hæl fylltist ég mikilli gleði og spenningi er þessi gamla og góða tilfinning flæddi um líkama minn. Já það mætti segja að ég hefði miklar mætur á þeim tölvuleiki er Baldur´s Gate nefnist og þætti mér gaman að fleiri og fleiri þannig tölvuleikir væru á vinnuborði þeirra ágætu manna er framleiddu umtalaðan tölvuleik.