Ég var að svara einum korki hérna og fór þá að spá, hafa aldrei verið plön um það að búa til Dragonlance leik? Þetta er ekki síðri heimur en hinir D&D heimarnir og fyrir þá sem hafa lesið eitthvað um heiminn er það bara gaman að geta svo hitt charactherana. Ég t.d. myndi vera þó nokkuð meira spenntur fyrir því að geta interactað við Raistlin og Sturm og þá.
Hugmynd að söguþræði gæti kannski verið í svipuðum dúr og Torment, eða þar að segja ekkert save the world plott í gangi, bara svona bjarga sjálfum sér. Þá gæti leikurinn einmitt gerst á sama tíma og Dragonlance Chronicles… Maður gæti verið einn af þeim sem berst við hliðina á Sturm við High Clerist Tower eða verið einn af undirforingjum vondu dragonlord gellunar (sem ég bara man ekki hvað heitir)
En æji, ég er að pissa á mig af spenningi og þetta mun samt aldrei gerast. Ég held ég sé farinn að taka róandi. Vekið mig ef það kemur einhvertíman Dragonlance leikur sem er þess virði að spila. ;)