Þannig er mál með vexti að mig vantar tölvuleik.

Mig vantar svona hlutverka/ævintýra leik, ekki of flókinn og helst frekar auðveldur, ég vil ekki þurfa að lesa 300 bls manual áður en ég get byrjað að spila.

Ég átti eitt sinn leik sem hét Silver, mikil snilld þar á ferð, en eftir að ég setti Windiws XP inn í tölvuna get ég ekki spilað hann, ég er að leita að leik í anda silver.

Ég á lika Baldur's Gate II Shadows of e-ð en mér fannst hann frekar langdregin og eitthvað og flókinn og djúpur (ég höndla ekki svona marga möguleika).

Góður leikur, með smá húmor, einfaldur, góður söguþráður, grafík skiptir litlu sem engu máli.

Blanda af Silver, Diablo og Monkey Island, getur einhver hjálpað mér? (þarf ekki að vera til á 'islandi, get verslað á netinu)