Ég var bara að pæla hvort að fólk vissi eitthvað um þennan leik. Hann á víst að koma á þessu ári, en heimasíðan þeirra gefur lítið fram. Sú tilfinning sem ég fæ þegar ég les um hann, er að þetta sé leikur gerður af nokkrum d&d spilurum sem vita eiginlega ekkert hvað þeir eru að gera, sem veldur mér miklum áhyggjum. Allavega þegar maður lítur á heimasíðuna þeirra þá lítur þetta allt mjög klént út. Svo á þessi leikur á víst að gerast á nýju meginlandi sem heitir Xen'drik í Eberron heiminum, en eftir því sem ég best veit þá er það einhverskonar auðn með einni borg, sem hljómar lítið spennandi. Einnig hljómar bardagakerfið kjánalega, en það á að vera einhverskonar klikk-combat, líkt og í Diablo.
Annað í leiknum hljómar ágætlega, en samt er þvílíkt mörgum spurningum svarað, þá sérstaklega hvað varðar pvp-ið í honum.
Vitið þið eitthvað meira?
heimasíða leiksins: www.ddo.com
Chelsea till I die!