Sælir,

Eins og margir hér fékk ég nýlega löngun til að spila Baldurs Gate 2 og Throne of Bhaal.
Eftir mikla leit komst ég að því að leikirnir mínir voru týndir (grr) og að ég þyrfti að kaupa þá aftur :(
Ég fann loksins BG2 í pakka með IWD og Invictus (whaa?), en hef HVERGI geta fundið Throne of Bhaal :(

Veit nokkur um einhverja verslun sem gæti átt hann í einhverju myrku horni, eða bakvið Sims leikina? :)
Ég er búinn að checka 3 BT búðir og Skífuna á laugarvegi og Kringlunni, en enginn á hann :(