Eins og titillin segir þá er ég að spyrja, hvað finnst fólki vera skemmtilegast classin og af hverju.
Mér finnst Paladin/Cavalier. Og bara af því að þetta er góður char, þeas. góð persóna. Góður fighter og á sína galdra þó þeir séu takmarkaðir. Seinna meir getur hann fengið Carormyr sem að mínu mati er með betri vopnum sem maður finnur! Ekki það að ég spilaði þennan class fyrir sverðið. Ég var með ósköpin öll öflugan Cavalier þar sem ég gekk bara um og solo'aði, ég hafði að vísu party enn notaði það ekki nema kannski fyrir heal, open locks, disarm traps og fleira í þeim dúr. Ef eitthvað var of erfitt þá var bara málið að nota Simulacrum.