Jæja ég varð að hafa mjög grípandi titil á þessum kork svo að það yrði tekið eftir honum.

Þannig er mál með vexti að ég var að gera nýtt party í Baldur's Gate 1 og bara búin að ganga mjög vel með það. Flottan Paladin, góðir statar, góður char jæja ekki meira um það. Ég er ekki kominn í Temple of Bhaal alveg í endann. Og það vill svo leiðinlega til að leikurinn crashar alltaf þegar ég er nálægt því að drepa Semaj, leiðinda Mage'inn sem húkir yfir honum Sarevok. Mér finnst þetta all slæmt, veit einhver hvernig ég get komið í veg fyrir þetta crash. Ég get ekki lifað með það á samvisku minni að ég hafi leyft Semaj að lifa.