Núna er ég að spila Baldur's gate 2 og er að fíla mig vel nema þegar að maður t.d. finnur Edwin eða bjargar Viconiu, þá segja þau, don't you remember me, eða eitthvað því um líkt. Ég er ekki búinn að spila Baldur's gate 1 nema eitthvað örlítið og þekki þess vegna þau ekki úr gamla leiknum. Núna er ég að pæla, ætti ég að kaupa mér gamla leikinn og vinna hann áður en ég vinn Baldur's gate 2. Þið sem hafið unnið 1 viljið þið segja mér, er það þess virði að geyma Baldur's gate 2 og vinna 1 áður.