Er einhversstaðar hægt að nálgast NwN Linux clientinn innanlands?

Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég fann þetta ekki inn á Valhöll. Ef einhver er með þetta þá þætti mér mjög vænt um það ef hann væri til í að senda mér þetta með einhverjum hætti.

1.12GB er ekkert sem maður er til í að downloada að utan ef maður kemst hjá því. Maður gæti keypt sjálfan leikinn fyrir download kostnaðinn (Minnir að ég hafi séð hann á 1990 einhversstaðar.) og þar sem ég á leikinn er ég ekkert of æstur í frekari útgjöld.