Smá vandræði hér. Ég kemst ekki framhjá veggnum með andlitið í Alley of Lingering Sighs. Hann biður mig um að gera við allt sem að Dabusinn hefur breytt í húsasundinu, en til þess þarf ég hamar og kúbein. Vandinn er sá að ég henti kúbeininu fyrir langa löngu! Ég geymdi hamarinn samt, veit ekki af hverju…

Getur einhver sagt mér hvar auka kúbein er, eða eitthvað svindl sem að býr til annað stykki!? Ég veit að það er lélegt að svindla, en þessar aðstæður eru einfaldlega of hrikalegar.

Royal Fool
Bringing smiles to sappy faces