Ég veit að þetta á ekki heima hér, en þar sem að þetta er Interplay, þá ákvað ég að senda þetta inn. Interplay var að skrifa undir samning við Warner Bros um að hanna leiki fyrir allar Matrix myndirnar.

Shiny Entertainment (Messiah, Sacrifice, MDK, Earthworm Jim) hafa fengið verkefnið og munu annast allt sem varðar hönnun og forritun fyrsta leiksins. Shiny eru meistarar í öllu sem þeir gera og því líklegt að þeir standi sig vel. Kíkið á www.shiny.com ef þið hafið aldrei heyrt um þá.

Ég fyrirgef þetta aftur, þessi grein á ekki heima hér en ekki heldur á neinum öðrum stað hér á huga. Það vantar áhugamál fyrir leiki almennt.

Og hér er svo grein um þetta á ensku:
www.avault.com/news/displaynews.asp?story=272001-761

Royal Fool
Bringing smiles to sappy faces<BR