Fyrir þá sem eru búnir að klára Icewind Dale, þá er hér smá Easter Egg. Þegar þið komið aftur til Easthaven til að berjast í síðasta bardaganum, þá er, eins og þið vitið, kominn risastór krystall í stað Temple of Tempus. Þessi krystall er Cryshal-Tirith, og kemur frá The Abyss (hræðilegasta planeinu) og nokkurn veginn ofsækir Ten Towns í landinu Icewind Dale. Gripur þessi er með krafta sem að gerir það að verkum að sá sem að hefur vald yfir honum getur eignast ótrúlega mikið afl.
Nokkrar bækur um Drizzt fjalla um þennan grip, og þar á meðal er The Crystal Shard, sem er fyrsta bókin í Icewind Dale trilogy.

Willie
<BR