Sæl veri þið öll,

Ég hef átt í hinu mestu vandræðum með neðanjarðar byrgið í Ulcaster skólanum, og virðist það engan enda ætla að taka.

En svo liggja mál í vextum…

Ég hef drepið hina ýmsu óviðeigandi íbúa neðanjarðarbyrgisins, en finn eigi fleiri ganga. En samt á korti mínu sést að það eru fleiri gangar handan við hina miklu veggi sem fyrir mér standa.

Því spyr ég, getur verið að þarna sé leynihurð, og ef svo er, getur einhver bennt mér á hvar þvílík djöflatól er að finna?

En svo má til gamans geta að ekki hef ég reynt að koma auga á leynihurðina sjálfur vegna leti.

Þakka áheyrnina..
<br><br>

<b>Gizzi De Gizisco</