—-(Spoiler fyrir þá sem ekki eru búnir með dragons eye.)—-




Leikurinn er hættur að virka hjá mér. Það atvikaðist þannig að ég var kominn í questið að finna modified mandrake root fyrir manninn sem maður bjargar úr fangelsinu(man ekki nafnið) en en rótin var ekki þar sem hun á að vera.
Þetta virðist vera frekar algengt bögg og fékk ég þær upplýsingar að ég ætti að skrifa ákveðinn kóða eða gera all Dragons Eye frá byrjun til þess að fá rótina. Þar sem ég var orðinn frekar pirraður á því að vera alltaf fastur á sama stað og finna enga lausn ákvað ég að reyna á kóðann.
Fyrst gekk allt eins og í sögu, leikurinn virkaði og ég fékk rótina og kláraði þarmeð questið, en þegar að ég ætlaði að snúa aftur til Kuldahar datt ég út úr leiknum og kemst ég enganveginn aftur inn í hann.
Ég hef reinstallað leiknum nokkrum sinnum(í mismunandi foldera) en það virkar ekki

Ef einhver hefur tillögu um hvað ég skuli gera þá væri það kærkomin hjálp.<br><br>->Grebliv