Við þrömmuðum um sléttunar og skógana í átt að staðnum sem Truntuandvarpið hafði áður bent upplýst okkur um áður en við hökkuðum hann. Ég, Iðunn, Minndisk, BrennaVið, Girðir og EftirVind stöðvuðum á Helmingjakalla þorpinu GúllasKinnar(Gullykin). Þar hvíldumst við og söfnuðum orku fyrir bardaga sem var fyrir höndum. En okkur til mikillar furðu hittum við 4 verðlauna veiðimenn(Bounty Hunters). Þeir báru kennsli á mig og réðust strax til athlögu, ég byrjaði að hlæja. En þá sá ég Iðunn detta í jörðinna, steindauð! Það fyllti mælinn! Ég stöðvaði hláturinn og dró upp sverðið úr slíðrinu og lét á mér kræla. MinnDisk réðst einnig í nágvígi og freistaði gæfunnar. Eftir voru Girðir sem reyndi allt sem hann gat á lásaboganum og dældi á þeim örvum. EftirVind og BrennaVið voru sérkunnuð í listum galdra og stóðu svolítið frá og köstuðu ýsmum göldrum á þessa 4 verðlauna veiðimenn. Einn þeirra féll af göldrum EftirVind og réðst þá einn bardagamaðurinn á EftirVind og klauf hann frá herðum og niður. Eftir stóðu Girðir, ég, BrennaVið og MinnDisk. Þetta var blóðug og mikill bardagi. Þegar honum loks lauk þá stóðu uppi, ég. Allir 4 verðlauna mennirnir drápust ásamt EftirVind, Iðunni, MinnDisk, BrennaVið og Girði. Þar stóð ég einn og sparkaði og kastaði vatni yfir lík verðlauna veiðimannana. Þar eftir dröslaðist ég einn og yfirgefinn í leit að fólki í liðið. Eina sem ég fann var Rauðu Galdrakallarnir frá Óhreinatauji(Red Wizards of Thay). Þar náði ég einum niður, enn féll sjálfur eftir mikla og blóðuga baráttu.

The End!

Hope You liked it.