Ég held það sé komið að reyna að vekja þetta áhugamál af einhverjum blundi og efna til smá samkeppni meðal hins minnkaldi notendafjölda þess. Eins og alvitað er hefur ekki verið banner hér frá því að það æxlaðist út frá Baldur's Gate og það er kominn tími á að einhver skreyting komi upp í hausinn.

Reglurnar eru sáraeinfaldar, bannerinn verður að vera 245x54 pixlar á stærð og formatið sem við notum er gif. Einnig má hann ekki vera tengdur einhverjum einum leik, þetta er áhugamál margra leikja og því legg ég áherslu á að þann þátt í ástundun þess.

Verðlaunin eru vitaskuld að fá að hafa banner eftir sig á forsíðu áhugamálsins og ánægjan sem því fylgir. :)

Svo er bara að opna photoshop og byrja að hanna!