Sæl. Ég hef verið að spila BG2 svona smá og er kominn með Assasin á 21 lvl. Nei, heldurðu að hann hafi ekki bara höstlað eina gellu og við orðið ástfangin! Nema hvað að þessi gella er bara til vandræða. Fyrst vildi hún fara því hlutirnir væru að gerast of hratt, en ég bannaði henni það. Þá höfðum við opinberað ást okkar með smá ástaratlotum sem ég fékk því miður ekki að taka mikinn þátt í. Svo breytir Bodhi henni í vampíru og ég verð að drepa hana. Okei, ekkert mál fer með hana til einhvers kalls á álfastaðnum og hann segir með að fara með hana beint til Ohgma prests. Svo gerði ég og viti menn…. ég get ekkert talað við þá og þeir vilja ekkert segja!!

Nú leita ég til ykkar. Hvað er til ráða?? Gengur þetta samband við Aarie, eða á það bara að enda illa? Hvað með Jaheiru og Viconiu? Enda samböndin bara illa eða hvað!! Kallinn minn er með 17 í charisma þannig hann ætti að standa sig alveg þokkalega í bólinu. Hjálpið mér að koma vitinu fyrir þær…

Kv.
Poseidon