ToB - söguþráðurinn, Spoiler warning! Ég hef verið að fylgjast með gangi mála um TOB undanfarið, og fundið allskonar skjáskot, fréttir, o.s.frv. af leiknum, og núna ætla ég að reyna að tengja þetta saman þannig að við getum séð út hvernig söguþráðurinn byrjar.
Þú byrjar hjá Ellesime stuttu eftir að þú hefur drepið Irenicus, og hún fréttir af stríði sem er í gangi eftir að eldrisi, sem er afkomandi bhaals hefur gert árás á borgina Saradush í Tethyr, og í leiðinni hefur Hálf-orskur leiðtogi borgarinnar misst vitið. Á leiðinni til borgarinnar ertu kallaður til abyssal-strongholdsins/pocket plane-ina þína, og þar hittirðu sarevok.. eða réttara sagt “það sem er eftir af honum”.
[Skjáskot:
Sarevok 2(Sarevok eftir að þú hefur lífgað hann við með því að gefa honum hluta sálar þinnar. Takið eftir breytingunni á avatarinum.
Sarevok 3(Portraitið hans Sarevoks)
Í þessari ”pocket plane" geturðu galdrað inn alla NPCana frá TOB, og þú átt víst alltaf að geta komið við í pocket planeinu þegar þú vilt. Í skjáskotinu sem ég sýni hér með er eitt sem vekur undrun mína. Nafn Yoshimos er þarna, en samt hefur oft verið sagt að hann verði ekki NPC í leiknum, þar sem hann sé nú þegar dauður eftir að hafa svikið þig.
Þegar þú kemur fyrst til borgarinnar hittirðu Melissan, verndara afkomenda bhaals, en það mun víst verða eftir einhvern bardaga við komuna.. þið getið séð allt um það í skjáskotinu sem fylgir hér með.
[Skjáskot: Melissan 1
Þegar þú ert kominn inn í Saradush áttu semsagt að stöðva árás eldrisanna, en einnig tuska til þennan hálf-orskan leiðtoga. Þetta er bara byrjuninn á sögunni, en það hefur því miður ekki komið meira fram, þannig að við verðum að láta þetta nægja þangað til að leikurinn kemur út er það ekki?
[Skjáskot: Kortið af Tethyr 1
Það er tvennt annað sem ég ætti að nefna. Eins og stóð í fyrri TOB greinum mínum eru aðeins fimm bhaalspawn eftir. Þú, Imoen, Eldrisinn, og svo voru tvö önnur sem við vissum ekkert um. Núna hefur komið fram skjáskot af öðru bhaalspawni, konu sem heitir "Asmay Jahag" og hún er víst að reyna að sleppa frá einhverjum Gromnir(kannski er hann hinn hálf-orski leiðtogi borgarinnar?), en það virðist sem að þú sért líka að reyna að sleppa frá þessum sama náunga.
[Skjáskot: Asmay Jahag 1</a