Ég er rétt í þessu að kynnast bókunum sem tilheyra Discworld seríuni eftir Terry Pratchett og er nú búinn að lesa 1 bók (Reaper Man) og er nú að lesa allra fyrstu bókina (The Colour of Magic) og hef ég kynnt mér þetta smávegis á netinu og er einnig að spila fyrsta ævintýra leikinn sem kom út og tengdist Discworld (taka má fram að þeir eru 3 talsins, að mig minnir) og ég var að pæla hvort einhverjir hér væru áhugasamir fyrir því að fá út tölvuhlutverkaleik sem myndi þá gerast í Discworld heiminum (Heimur sem er haldin uppi af fjórum fílum, þeim Berilia, Tubul, Great T'Phon og Jerakeen, og standa þeir á risavaxinni skjaldböku (kyn óvitað) sem syndir um himingeiminn (ástæða ekki vituð en til eru margar kenningar). Þess má geta að heimurinn er í lagi eins og diskur eins og nafnið gefur til skynja og því er hann flatur og hægt er að komast að enda plánetunar.) og mynda þá sinn eigin karakter og geta haft frelsi til að gera margt og mikið, og leikurinn hafi þá eitthvað plot þar sem þú hefur einhver árhrif á það sem á sér stað í þeirri atburðarrás sem á sér stað. Ef svo er að einhver hafi áhuga á þessu væru svör velkominn og allskyns hugmyndir um eitt og annað sem gæti tengst þessu líka velkomnar. Þess má geta að enginn svona leikur er til, ég er bara að forvitnast um hvort einhverjir myndu hafa áhuga á að fá svoleiðis leik og hvernig þeir myndu vilja hafa hann…

Takk fyrir…..