Ég sagði í fyrri grein minni um nýja NPCinn að hann yrði mjög líklega Elminster. Ég sýndi ykkur screenshot, sagði ykkur að Bioware hefði sagt að nýji NPCinn væri þekktur frá fyrri BG leikjum, og einnig að flest BG2 “forum” í heiminum væru komin að þeirri niðurstöðu að Elminster verði nýji NPCinn.

Ég er kominn með enn meira sem styður þessa kenningu. Á einu þessara “foruma” sá ég að Bioware hafði verið spurt hvort að Elminster yrði nýji NPCinn. Bioware “sagði ekki neitt”, vegna þess að allt um nýja NPCinn eigi að vera leyndarmál.

Ef að þetta væri allt sem ég væri með mundi ég alls ekki posta þessa grein, en núna rétt áðan var ég að finna ANNAÐ SCREENSHOT af Elminster. Kíkið á <a href="http://firingsquad.gamers.com/features/biowarevisit/page2.asp target=“_blank”>Þetta</a>, Og stækkið eftri myndina upp(ég gat ekki postað kóðan beint af myndinni, útaf því að þetta er allt í einhverju javascripti sem stækkar hana).

ÞETTA GETUR EKKI VERIÐ NEINN ANNAR EN ELMINSTER, nema að þetta sé “apperanceið” á nýja classinum sem kemur í ToB, The Wild Mage? Ég hallast samt mun frekar að því að þetta sé Elminster, en hver veit?