Er Bioware að hinta á Baldur's Gate III ?

Eins og við vitum öll vel, á “child of bhaal” sagan að enda með Throne of Bhaal sem kemur út í Júní.

Útaf þessum aukadisk héldu margir, og þar á meðal ég að þetta þýddi endinn að BG seríunni. Í fyrsta ToB previewinu sem ég benti ykkur á stóð þetta orðrétt:

“This expansion pack wraps up the storyline of the child of Bhaal saga. It's certainly not going to be the end of the Baldur's Gate series, but this will wrap things up for people who played Baldur's Gate, or who have played Baldur's Gate II–some or all of it.”.

Þarna stendur skýrum stöfum: “It's certainly NOT going to be the end of the Baldur's Gate series”, og þetta er sagt af einum valdamesta manni innan Bioware, Alan Mirada.

Ég hef líka tekið eftir því að þegar Bioware, Black Isle Interplay, og CGO tilkynntu ToB stóð ekki “the end of BG” heldur “the end of the child of bhaal storyline”. Þetta getur varla verið tilviljun.

Hvað ef þeir gera BG III þar sem að þú gerir alveg nýjan kall og átt kannski að drepa hinn nýja Bhaal, gamla kallinn þinn?

Hvað finnst ykkur um þetta ? Allar athugasemdir, aðrar hugmyndir, gagngrýnir, etc eru velkomnar!