Eins og sumir vita þá er eitt quest sem að inniheldur það að fá gyllta líkamsparta af fornri Lich sem heitir Kangaxx, en hann er til húsa við hliðina á Mae'var's Guild. Þegar þú talar við Kangaxx færir hann þér það verkefni að ná í útlimi hans og búk. Þessar líkamspartar eru í húsi einu í Bridge District og í Sewers undir Temple District. Þú þarft að búa þig undir stóra bardaga, því að til að ná hlutunum, verður þú að berjast við tvær Lich.

1. Það þarf að fá lykil til að ná í þessi hjá Gaal í Cult of the eyeless, sem er í sewers undir temple district. Þessi staður sem að þessir hlutir eru á eru mjög áberandi (og er í norðvestri; steinkistakista í miðjum hring af styttum afbeinagrindum). Ýttu með músartakkanum á kistuna, og nálægt kistunni á að birtast Shade Lich. Hún ætti ekki að vera neitt VOÐALEGA erfið, bara svolítið. Allavegana, dreptu hana og kíktu ofan í kistuna. Þar ættirðu að finna einn líkamspart. Restaðu og búðu þig undir bardaga við jafnvel erfiðari Lich.

2. Seinni Lichin er í Bridge District. Húsið sem hún er í suðvesturenda borgarhlutans. Það er gildra á hurðinni, svo að þú ættir að aftengja hana áður en þú labbar inn. Farðu niður í kjallarann á byggingunni. Þar ætti að vera alveg nákvæmlega eins svæði og í Sewers, nema þarna er bara einn útgangur. Notaðu steinkistuna og það ætti Elemental Lich að birtast. Dreptu hana og hirtu seinni partinn af líkamsleifunum úr kistunni.

ATH: Ef þú ert EKKI í sjötta eða sjöunda kafla leiksins, þá ættir þú að halda áfram að spila hann án þess að fara í bardaga við Kangaxx. Ef að þú ert hins vegar í öðrum hvorum af þessum tveimur köflum, þá ætti þér að vera óhætt að halda áfram í Kangaxx. Auk þess er mikilvægt að Galdrakallinn þinn sé EKKI specializaður í neinu, því að þá verður Kangaxx aðeins erfiðari. Auk þess þarf galdrakarlinn þinn að vera á level 17 til að gera þetta sem auðveldast.

Það sem að þú þarft til að gera þetta sem auðveldast er:

Hlutir:
Dragons Breath +4
Staff of the Woodlands +4
Cutthroat +4
Robe of Vecna

Galdrar:
2 Abi-Dalzim’s Horrid Wilting
1 Sunray
1 Spell Immunity
1 Haste
Hellingur af Freedom scrollum (ég keypti 10).

Ástæðurnar fyrir þessu “arrangmenti” er að ekkert vopn verra en +4 bítur á Kangaxx þegar hann er í Demi-Lich formi, auk þess sem hann hefur endalaust af Imprisonment göldrum. Til að kaupa Freedom scroll, farðu þá í Adventurer’s Mart þegar þú ert í sjötta kafla, og leyfðu Ribald að sýna þér “Special Wares” (ég veit það kostar 50gp, en það borgar sig). Kauptu 7-10 svona. Til að fá Robe of Vecna, þá þarftu að vera með hlutina af bonus disknum sem fylgir Collector's Edition, en það er hægt að ná í <a href="http://www.bgdungeon.com/bg2/downloads.htm“>hér</a>.

Restaðu til að memoriza galdrana og farðu svo á fund Kangaxx. Áður en þú talar við hann skaltu láta mageinn þinn kasta Spell Immunity, og velja Abjuration Immunity (fyrst Imprisonment er Abjuration). Talaðu við hann og gefðu honum líkamspartana. Hann rís brátt upp sem Lich og ræðst á þig. Þarna á að nota Abi-Dalzim’s Horrid Wilting og Sunray, til að drepa hana. En núna kemur erfiði parturinn. Hún á að tala eitthvað bullshit við þig, og breytast svo í Demi-Lich (sem er bara hausinn). Láttu þá sem eru með +4 vopnin hamrast á henni. Í hvert skipti sem einhver sem er með +4 vopn er Imprisonaður, skaltu nota Freedom til að fá hann til baka. Þá ætti NPC-inn þinn að koma aftur, og Kangaxx lætur þá í friði, þar sem að þeir eru ekki enn með þér í Partyi. Til að gera þetta sem auðveldast, skaltu láta þann sem að er EKKI með +4 vopn verða blóraböggul. Hann notar Imprisonment á þann gaur, en svo getur þú alltaf notað Freedom til að fá hann til baka, talað við hann og fengið hann aftur í Party með þér. Þegar þér tekst loksins að drepa Kangaxx, skaltu vera alveg viss um að taka af honum hringinn, Ring of Gaxx.

Ring of Gaxx:
Armor Class +2 bonus
Saving Throws +2 bonus
Magic Resistance +10% bonus
Immunity fyrir Disease og Poison
Þú græðir 1 hp á 3 sekúndna fresti
Invisibility 1x á dag
Improved Haste 3x á dag

Þetta þýðir að það sé þess virði að drepa Kangaxx. Virkilega vel launað.

Ef þið vitið um fleiri tactics á Kangaxx, þá er ég opinn á e-mailinu mínu, <a href=mailto:willie@hugi.is?subject=Kangaxx tactics”>willie@hugi.is</a>.

Lifið heil,
Willie