Collector’s Edition ennþá til? Það hefur komið í ljós að Baldur’s Gate 2 Collector’s Edition er ennþá til á lager hjá mörgum verslunum, þar á meðal Electronic Bountique (<a href="http://www.ebworld.com“>www.ebworld.com</a>). Baldur’s Gate 2 Collector’s Edition inniheldur sérstakan bonus disk með auka-NPC (sem heitir Deidre) og 10 nýja hluti sem Deidre selur (þar á meðal Robe of Vecna). Soundtrackið úr leiknum er á sér disk. Auk þess fylgir kort (af einhverju), Black Isle Studios skrifblokk og ”trading cards.“ Áhugasamir geta farið á <a href=”http://www.ebworld.com">www.ebworld.com</a> og pantað sér eintak. Verslunin er örugg og þægileg og skilar ávallt sínum vörum. Baldur’s Gate 2 Collector’s Edition kostar tæpa 56$, en við bætist sendingarkostnaður ásamt aukakostnaði, svo að varan ætti að leysa um 10.000 kall úr buddunni þinni. Ef að þú átt leikinn máttu alveg hunsa þessa frétt :Þ

Lifið heil,
Willie