Á heimasíðu BioWare, framleiðanda Baldur’s Gate leikjanna, stendur að þeir gefi EKKI út Forgotten Realms leik þegar að þeir klára Neverwinter Nights. Á heimasíðunni stendur skýrt og greinilega að næsti leikur þeirra verði Star Wars hlutverkaleikur. Hér er það sem að stóð nákvæmlega á síðunni:

The next project on our drawing board is allows us a new universe to play in. The Star Wars roleplaying game will be our first game for George Lucas' LucasArts Entertainment Company.

En þetta þýðir þó ekki að Forgotten Realms leikir hætti að streyma inn. Black Isle mun sennilega gefa út annan leik eftir að þeir hafa klárað Icewind Dale: Heart of Winter. Auk þess er fyrirtækið Stormfront Studios að klára leikinn Pool of Radiance: Ruins of Myth Drannor.

Helmur the almighty