DRUID STRONGHOLD

Virkar fyrir:
Druid, Shapeshifter, Totemic Druid og Avenger

Druid Grove

Það er maður í miðjunni á City Gates sem að segir þér frá vanda í litlum bæ sem nefnis Trademeet. Farðu þangað og kláraðu öll verkefnin til að fá Druid Grovið. Þú verður að vera á level 14 til að verða Greater Druid, en aðeins þeir mega verða leaders yfir Druid Grove. Þótt þú sért ekki á level 14 þegar þú nærð því yfir á þitt vald, þá þýðir það ekki að þú fáir það ekki. Um leið og þú nærð fjórtánda leveli, kemur til þín maður og segir þér að fara að Druid Groveinum. Þegar þú kemur þangað, skoraðu þá á Greater Druidiann. Fyrir að sigra hann færðu 10,000 experience og 20,000 experience fyrir að verða Great Druid. Þú eignast líka Cleric’s Staff +3 og Ring of Protection +2.
Auk þessa fylgja Strongholdinu 2 verkefni. Til að fá þessi verkefni verður þú að

1. Innan skamms ætti andi (spirit) Grovesins að koma til þín og biðjast hjálpar. Samþykktu það. Andinn segir þér að þú átt að fara og drepa nýjan leiðtoga tröllanna, Nilthiri. Til að hjálpa þér gefur hún þér kylfu (club) sem að heitir því undarlega nafni The root of the Problem. Farðu til Troll Moundsins, sem er í neðra horni vinstra megin. Frá Moundinu, ferðastu til hægri og þú ættir að mæta Nilthiri. Dreptu hann og tröllin til að fá smávegis experience. Andi grovesins mun birtast þér aftur og gefa þér 18,500 quest experience (þ.e. hver og einn fær 18,500 experience fyrir sig).

2. Eftir u.þ.b. viku, farðu aftur í Groveið og sofðu þar. Andi Grovesins mun birtast þér aftur og biðja þig hjálpar í annað skiptið. Í þetta sinn er afkomandi eins Great Druids, Loren, í hættu. Farðu til Trademeet og að gulu tjaldi. Loren ætti að vera einhversstaðar nálægt því. Spyrðu barnið um raddirnar sem það heyrir, og segðu því að berjast á móti þeim svo að þú getir mætt þeim augliti til auglitis (ýttu á 3, 1, 1, 1 og 1). Loren dettur niður meðvitundarlaus og Chaos birtist. Chaos breytist í skrímsli og ræðst á þig. Dreptu Chaos til þess að græða 12,000 experience. Þegar skrímslið er dautt mun andinn birtast þér og gefa þér Gold Lion Figurine og 20,500 quest experience.

Lifið heil,
Helmur the almighty