Hefur einhver reynt við það? Skiptir ekki máli ef það var Forgotten Realms eða venjulegt D&D, en það mega ekki vera spilaleikir. (Card games)

Ég reyndi að glíma við einn svoleiðis leik, var reyndar þegar vinur minn var líka fyrst að prófa svona spil. Ég var bara Fighter og gekk inn í einhvern sal ásamt nokkrum öðrum gaurum. Og ÚFF! Allt í einu komu tveir koboldar. Þeir réðust á okkur eftir að þeir héldu að við værum að móðga þá, og bardaginn stóð í fimm mínútur. Ég var alvarlega slasaður, (missti 7 HP af tólf minnir mig) og síðan gengum við lengra inn. þá tók Gelatinious Cube á móti okkur og drap alla. Gaman. Eftir það snerti ég ekki svona hluti.

En svo kom Baldur's Gate. Og ég tók til baka allt sem ég hafði sagt um svona hluti…

Royal Fool
Bringing smiles to sappy faces