Ekki lesa áfram ef þú vilt ekki eyðileggja þá reynslu sem þú getur orðið fyrir á meðan þú spilar Baldur's Gate 2.

Það sem flestir vita er svolítil kúnst að drepa dreka. Hér á eftir er smá leið til þess að drepa drekana Firkraag (red dragon) og Thaxll'ssyllia (Shadow dragon) án þess að þurfa að breyta sér í Slayer.

1. Byrjaðu á því að fara með tvo lélegustu kallana, eins langt frá drekanum og hægt er. Labbaðu með afganginn af partyinu að drekanum, eða allaveganna þangað til að þessir tveir sem að þú skildir eftir eru horfnir af skjánum.
2. Notaðu svo galdrakall (eða konu) til að casta Haste á hina fjóra. Láttu þá standa hjá drekanum.
3. Veldu svo annan þeirra sem þú castaðir ekki Haste á og klikkaðu með vinstri músartakka á drekann. Þegar lélegi kallinn byrjar að labba af stað, ýttu þá á space og láttu kallana með Haste byrja að lemja drekann (mundu bara að save-a áður). Un-pausaðu svo leikinn og láttu kallana berja drekann.
4. Ef lélegi characterinn er kominn svo nálægt drekanum að þú óttast að dialouge boxið birtist, ýttu á space, láttu lélega characterinn (sem er næst drekanum) fara til baka, þar sem hinn lélegi characterinn er. Sendu svo hinn lélega characterinn af stað að tala við drekann, ýttu á space, og láttu kallana með Haste halda áfram að berja drekann.

Endurtaktu skref 4 þangað til drekinn er dauður. Ef drekinn byrjar að ráðast á þig, þá mæli ég með því að þú loadir, enda er ekki voðalega skemmtilegt að sjá party-ið drepast út af honum. Það er vegna þess að á meðan á leiktíma stendur, getur þú farið að tengjast persónum leiksins tilfinningalegum böndum (ég hef heyrt ýmsar reynslusögur BG spilara).
Ef hann deyr, þá máttu hoppa hæð þína af gleði og loota hann.

Fyrir Firkraag færðu:
64,000 exp.
Red dragon scales (er hægt að breyta í armor hjá Cromwell)
Carsomyr +5 (geðveikt Paladin only two-handed sword)
Cloak of the shield (ekkert special cloak)
1500 gold
Invisible Stalker (Mage galdur)

Fyrir Thaxll'ssyllia færðu:
45,000 exp.
Shadow dragon scales (er hægt að breyta í armor hjá Cromwell)
Crom Faeyr Scroll (uppskriftina að besta vopninu í leiknum)
Fullt af gems og gulli

Use this information well

Helmur the almighty