Ekki senda inn eftirfarandi:

<b>Heimskulegar og/eða ófrumlegar kannanir</b>
Þá er ég að tala um kannanir á borð við hvað fólki finnist um nöfn á corporations, hvort fólk ætli sér að kaupa EVE: The Second Genesis, hvort fólk sé sátt eða ósátt við að það verði að borga áskriftargjald að leiknum et cetera. Svona kannanir hafa bara komið einum of oft eða eru svo tilgangslausar að það er þess vegna bara tímaeyðsla að fara að hafna þeim, svo vinsamlegast sparið okkur adminum sporin og HÆTTIÐ AÐ SENDA SVONA RUSL INN!

<b>Kannanir sem hafa birst áður</b>
Já, kannanir sem hafa birst áður eiga margar heima í flokknum sem ég benti á fyrir ofan. Á hinn bóginn eru líka margar mjög fínar kannanir sem áður hafa birst. En vinsamlegast ekki senda þær inn áður nema að í það minnsta! heilt ár hafi liðið frá því að hún hvarf sjónum okkar á forsíðu áhugamálsins.

—————————————

Einnig vil ég benda ykkur á að vanda málfar í könnunum, hvort sem það tengist spurningu könnunarinnar eða svörum hennar. Það er ekkert leiðinlegra að vera að taka þátt í könnun og fatta ekki spurninguna því að hún er svo illa orðuð.

Vinsamlegast reynið að taka þetta að einhverju leyti til ykkar, því með ykkar hjálp getið þið gert stjórnun þessa áhugamáls auðveldari fyrir okkur sem því stýra.<br><br>Villi

<i>And you don't seem to understand,
a shame you seemed a honest man,
and all the fears you hold so dear,
turn to whisper in your ear.</i>
<a href="http://www.boaweb.co.uk“>Bôa</a> - <a href=”http://www.boaweb.co.uk/audio/duvet.mp3">Duvet</a