Fyrir þá sem hafa lifað í kassa undarfarnr vikur þá væri það gaman fyrir ykkur að vita að undanfarna daga hefur verið í gangi stærsta tölvuleikjasamkoma heims hin svokallaða E3 sýning.

Okkar menn frá CCP voru að sjálfsögðu á svæðinu með fullt af skemmtilegum upplýsingum handa fróðleiksfúsum tölvuleikjanördum. En þetta er án efa stærsta auglýsing þeirra CCP manna hingað til.

Núna áðan voru að koma miklar upplýsingar af hönfum CCP manna um innihald leiksins og það sem þeir eru að sýna erlendis af EVE.

Á www.eve.is er komið marggrynni af nýjungum, þar helst ber að nefna svokallaðan E3 trailer, sem sýnir menn vera spila leikinn og hann sést í allr sinni dýrð. Þar sérstaklega má nefna interfaceið sem loksins er sýnt almenningi í fullum dýrðarljóma. Einnig hefur núna bæst við skjáskotin heil 12 stykki og í concept art hefur komið 16 stykkja viðbót. Einnig má ekki gleyma framlagi RealX sem færir okkur meira af ambient drauma tónlist.

Þannig að ég hvet alla að kíkja á www.eve.is og nýjungar sem þar leinast.

General Talon Karde
ARTS
Raid Enterprises
Head of the Blood Talons
————————-