Nú er búið að vera í handraðanum undanfarið að spá í því að taka saman höndum eða sameina þau clön sem að þegar eru uppi. En hvað er vænlegast? Hvað skeður ef clönin fara í Alliance við hvort annað?

Þessari spurningu er ekki auðveldlega svarað, hvað þá öðrum spurningum. Það sem að er gott við Alliance er:

1) Það eru sterk tengsl á milli og það er hægt að tradea ódýrt milli þeirra.
2) Það er hægt að bjóða t.d. escort þjónustu ódýrt eða ókeypis, ef út í það er farið.

En hins vegar, ef að þetta yrði sama factionið, væri þetta hagstæðara, því það þyrfti ekki að tradea enda væru þau með sameiginleg resources. Það þyrfti ekki að borga fyrir escort enda þetta allt innan samtakanna.

Ég hef sagt þetta einu sinni og segi þetta aftur:
Að sameina clönin er einhver albesta hugmynd sem að fólk hefur fengið. Sérstaklega ef það vinnur á flestum þeim sviðum sem að boðið er uppá.

Það er á herðum leadera clananna að taka lokaákvörðum um þetta mál. Ég er meira fylgjandi sameiningu enda góður kostur fyrir okkur smámennin. Ef við sameinum okkur ekki þá er hætta á að það verði valtað yfir okkur og okkur þjappað saman í einu af mörgum hornum vetrarbrautarinnar.

Kv.
willie