Gleymt lykilorð
Nýskráning
Black and white
Þetta áhugamál er frosið. Ekki er hægt að senda inn efni.

Black and white

5.992 stig
131 greinar
1.024 þræðir
40 tilkynningar
21 pistlar
144 myndir
274 kannanir
6.584 álit
Meira

Ofurhugar

Nolthaz Nolthaz 752 stig
Svafnir Svafnir 330 stig
J3rX J3rX 328 stig
Mutter Mutter 262 stig
snjall snjall 232 stig
optimusprime optimusprime 148 stig
RoyalFool RoyalFool 116 stig
Ef þú ætlar að lesa þetta þá bið ég þig að lesa þetta allt en ekki bara byrjunina því það er svo mikið um Black and white sem er erfitt að útskýra því það er ekki hægt að líkja honum við neinn annann leik.

----

Þegar Black & White (eða BW) var auglýstur fyrst sem "guð leikur" (eða god game) voru allir mjög spenntir yfir því hvernig Lionhead Studios Ltd mundi redda þessu, flestir héldu að þetta yrði ekkert sérstakt og bara léleg brella til þess að gera einhvernvegin öðurvísi leik, Lionhead Studios kom þeim heldur betur á óvart því að seinna meir átti þessi leikur að breyta hugsunini á bakvið RTS leiki.

Í Black & White leikurðu guð, já guð, Alpha and the Omega, Seif, Þór, Ra, hvernig sem þú vilt haga þér sem guð þá geturðu það. Sem guð þá ertu beðin/n um að hjálpa fólkinu í "Eden" þannig verðurðu til. Eins og segir í leiknum "In a world of innocence there is no need for gods" sem sagt í heimi þar sem allt er saklaust þarf engann guð. En sakleysið varir ekki lengi og þína hjálp er vantað. Hjón biðja í neyð sinni um að bjarga litla stráknum sínum frá því að verða étinn af hákarli og þá mætir þú. Eftir það byrjar gamanið, þú getur valið um hvort þú hjálpar fólkinu ekkert eða hjálpar því eins og þú getur og reynt að láta lífið þeirra vera eins dásamlegt og þú getur. Hofið þitt (eða temple-ið þitt) sem er aðal byggingin breytist eftir því sem þú hagar þér. Ef þú drepur fólk og ákveður ekkert að hjálpa því þá verður það rautt og drungalegt, himinn verður dimmur og hendin sem þú notar til alls verður rauð og æðaber en ef þú hjálpar öllum og gerir allt það sem gerir alla ánægða þá verður hofið bláhvítt og yndislegt, regnbogar birtast í himninum og hendin verður hrein og silkimjúk.

Annað í Black & White sem gerir hann mjög sérstakann er dýrið þitt. Þitt eigið dýr sem stækkar og verður gáfaðara með tímanum þú getur kennt því að gera hvað sem þú getur gert. Þú notar ákveðna ól til þess að segja því að fara frá ákveðnum stað til einhvers annars. Til er lærnings ól, góð ól og vond ól. Dýrið getur breyst alveg eins og þú (semsagt orðið gott eða vont) bæði í útliti og hegðun, ef það er vont þá fær það ýmist gadda og verður dekkri og ógeðslegari, það byrjar að koma vond fýla af honum og það rýkur af honum vondleikinn. En hinsvegar ef þú lætur hann gera góða hluti og hjálpar fólkinu þá glansar hann alveg af góðleika og verður ýmist hvítur eða ljósblár. Ef þú þjálfar dýrið þitt verður það massað, en ef þú gefur því of mikið af svínum, kindum eða mönnum ? verður það feitt og latt. Í leiknum er notað sérstakt kerfi til þess að kenna dýrinu, einskonar reward/punish semsagt ef dýrið gerir einhvað af sér sem þú vilt ekki að hann gerir t.d étur mannfólk þá geturðu sláð það eins fast og þú getur eða bara rétt lamið á það og þá veit það að það er ekki gott að borða fólk en hinsvegar ef þú klappar því og strýkur þá veit hann að það er gott að éta fólk.

Tekið af íslensku B&W síðunni
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok