Ákvað að opna annan þráð því þetta er um allt annað en hinn þráðurinn.
Þannig er það að strákurinn minn skilur ekki nei, hann hlær bara að mér alveg sama hvar ég reyni að vera alvarleg. Ég vil ekki lemja á puttana á honum(fynnst það vera ofbeldi) og mér dettur ekkert annað í hug, er hann ekki of ungur til að skilja skammakrók? (hann verður eins árs 9.des) Hann er byrjaður að bíta núna bæði mig í geirvörtuna og svo tærnar líka, svo beit hann víst pabba sinn í nefið áðan og fynnst það alltaf jafn fyndið þegar okkur bregður, við reynum að láta okkur eki bregða og skamma hann en honum fynnst það bara fyndið þegar við seigðum nei! og Ó Ó! og svona gerir mann ekki!! ég vil reyna að taka á þessu bitvandamáli strax því ég vil ekki að hann fari að bíta hin börnin hjá dagmömmunni einhver ráð?? hann virðist ekki vera að taka tennur en það gæti samt vel verið hann er bara komin með 6 tennur, hann bítur ekki í neitt af dótinu sínu og stingur ekki ölu upp í sig svo hann virðist ekki vera pirraður í gómnum. æji komin næg langloka kveðja GiRND