Hvað finnst ykkur um að láta ungabörn sofa úti? Mér finnst það rugl, er ekki alveg eins gott að láta barnið sofa inni í vel loftræstu herbergi innan öryggi heimilisins. Ég læt það nú vera þó þau séu látin lúlla úti í góðum veðrum á sumrin og á góðum stað. En að sjá fólk henda börnunum sínum út í vagn í hvaða veðri sem er gerir mig bara reiða. Afhverju leggja foreldrar sig þá ekki líka úti ef þetta er svona heilnæmt. Þeim myndi einfaldlega ekki detta það til hugar og segja að sá sem gerði það væri nú ekki með öllum mjalla en samt láta þeir börnin sín sofa úti. Ég hef séð fólk láta börnin sín út í ótrúlegustu veðrum og við ótrúlegustu aðstæður. Mér blöskraði nú í fréttinni um daginn um fólkið sem á húsið við bandaríska sendiráðið og hefur ekki afnot af baklóðinni. Fréttamaðurinn var að sýna þeim samúð að vesalings fólkið það neyddist til að láta barnið sofa úti fyrir framan húsið og rétt hjá lá ruslið eins og hráviði. Það hlýtur nú að vera hægt að planta ruslatunnu þarna á gangstéttina og ef þau hefðu aðgang að baklóðinni þá væntanlega myndu barn og rusl fá að dúsa þar saman hvort sem er. Þar að auki þurfa þau ekki lífsnauðsynlega að láta barnið sofa úti og það hlýtur að vera mikil umferð gangandi fólks þarna framhjá, ég myndi ekki láta barnið sofa þarna úti eftirlitslaust.
Þetta er ekki lengur litla saklausa Ísland þar sem ekkert slæmt gerist. Ef einhver ætlar að ræna barni hér, þá hefur viðkomandi úr nógu að velja. Þeir sem segja að börnin þeirra sofi miklu betur úti, er það ekki bara spurning um , hvað þau eru vaninn á frá byrjun? Fólk er að hneysklast á því að foreldrar séu að fara með nokkurra mánaða ungabörn í verslanir vegna sýkingahættu en á sama tíma er það tilbúið að láta þessi litlu börn sofa úti í margra stiga frosti og vondum veðrum, þau eru jafnvel látin sofa úti við götur þar sem er mikil umferð og væntanlega mikil mengun, er það heilnæma loftið sem þau eiga að anda að sér. Nei mér finnst að fólk ætti nú aðeins að hugsa sinn gang og ekki gera hluti bara af því að mamma gerði það og amma gerði það enda voru aðrir tímar þá, sennilega minni mengun. Ég held að um þetta hljóti að gilda eins og annað, allt er gott í hófi. Svo verða foreldrar að passa sig á því að muna eitt, þegar börnin stækka og fara að geta hreyft sig meira, risið upp t.d. þá er vissara að þau séu bundin niður. Ég veit um dæmi þess að fólk missti rúmlega eins árs gamla dóttur sína af því að hún datt út úr vagninum. Ég lét dóttur mína aldrei sofa úti, mér fannst það einfaldlega fáránlegt og ég hef ekki orðið var við það að hún hafi borið einhvern skaða af, ef eitthvað er, þá held ég að hún hafi einmitt verið mun hraustari en mörg börn í kringum hana á sama aldri sem voru látin sofa úti. Fékk sjaldnar kvefpestir, aldrei í eyrun sem virðist samt plaga ansi stóran hluta ungbarna gæti verið samhengi þarna á milli, það er spurning? Hef oft velt þessum hlutum fyrir mér. Einhverjir verða sjálfsagt æstir yfir þessum skrifum mínum en ég verð æst af að sjá fólk setja börnin sín hugsunarlaust út í hvaða veður sem er og hvar sem er.

Kveðja PiCatChyou
——————————