æj!!
anginn minn er orðinn lasinn! :( fékk hita í gær og getur varla andað fyrir kvefi! greyið! eins og þegar hann vaknaði í morgun.. þá sást varla í nebbann á honum fyrir hori sem var bara búið að storkna og bara loka fyrir nebbann hans.. og gröftur í litlu sætu augunum hans.. ég er að deyja.. mig langar svo mikið að gera eitthvað fyrir hann en það bara er ekkert hægt.. hann er samt sofandi núna sem betur fer. ég vona bara að honum batni fljótt.. það er hræðilegt að sjá hann svona! og maður getur ekkert gert nema vorkennt honum! hann bara skælir og vælir og gefur frá sér alls konar hljóð sem benda til þess að honum líði geðveikt illa.. og vill ekkert leika sér eða gera neitt nema bara láta halda á sér og faðma sig.. ég get þó allavega gert það fyrir hann! faðmað hann eins mikið og ég get og sýnt honum hvað mér þykir vænt um hann! en þetta er alveg hryllilega erfitt! en þetta gegnur yfir.. vonandi sem fyrst!
vildi bara segja ykkur þetta…

milljón kossar og knúz til þín elsku Bergsveinn Máni minn!
láttu þér batna!
:)

Kveðja

GIZ