Jæja, þá styttist… Höfum haft það gott um helgina, ekkert farið út, ekki fengið neinn í heimsókn… þannig á það að vera, just the two of us! En allavegana þá er ennþá ljótur hósti í honum og það er sorglegra en allt að geta ekkert gert… Maður verður bara að vona að þetta fari að lagast… Við erum búnir að vera ótrúlega duglegir um helgina. Við erum búnir að ryksuga aðeins, setja í tvær vélar, og brjóta saman, fara í bað, næstum því búnir að kúka í koppinn… munaði bara nokkrum cm… Djók..! Svo á morgun ætlum við að fara að gefa öndunum… Það verður fínn endir á annars góðri helgi… Svo fer að styttast í jólin, og snjóinn, annars er allt gott af okkur að frétta, loads of laughter hjá okkur og svo verðum við meira saman í des…
Bara svona…
Gromit