Börnin eru framtíðin, þau eru mikilvæg og skipta miklu máli.
Verum með augun vel opin.
Dæmisaga:
Fyrir stuttu fundum við lítinn hnúð alveg við naflann á dóttur okkar nú við notuðum tækifærið og spurðum lækninn að því hvað þetta gæti verið því ég hafði miklar áhyggjur af þessu og hún var skoðuð og læknirinn bað annan lækni að koma til að fá álit annars læknis og í ljós kom að þetta væri góðkynja æxli og mikið erum við fegin því að þetta er bara góðkynja æxli en ekki neitt verra því krabbamein er mjög algengt í minni fjölskyldu. Auðvitað er ekkert gott að hún sé með æxli og þurfi að fara í aðgerð til að láta fjarðlægja þetta en hún var þó ekki með eitthvað verra eins og til dæmis hvítblæði.
Ég kvet ykkur til að vera á varbergi. Ekki segja það kemur ekkert fyrir hjá okkur. Opnum augun upp á gátt og njótum þess að lifa og að eiga yndisleg börn.
Lifið heil og hamingjusöm.
Kveðja,
Krusindull