úff ég lenti sko aldeilis í slæmu í dag! ég skrapp í bónus fyrir hana mömmu og þegar ég var á leiðinni út, þá sá ég fyrrverandi kennara minn.. Þessi kennari káfaði á stelpum í skólanum og lamdi nokkra stráka.. eða tók aðeins í þá.. En svo á endanum þá barði hann bróðir minn, barði hann það mikið að mamma fékk áverkavottorð og kærði kennarann.. Hann var þá á endanum rekinn…
Ég bara skil ekki hvernig þessi maður getur fengið að ganga um laus… Hann var kennari í barnaskóla!!
Hann er bara heppinn að ég var með innkaupapoka í höndunum en ekki Baseballkylfu!! Svona helvítis barnaníðingar eiga ekki að fá að ganga um lausir!!