Sunnudaginn 1. febrúar kemur út ný Magic sería og verður forkynningarmót í Nexus, Hverfisgötu 103 kl. 12:00 á hádegi.

Serían heitir Conflux og er önnur serían af þremur í Alara blokkinni, en þetta er með flottari Magic seríum sem komið hefur út lengi.

Nú er lag fyrir gamla Magic spilara og fólk sem ekki hefur mætt á mót áður að mæta og eiga kost á spilaverðlaunum fyrir topp 8 sætin. Þátttakendur fá 3 Boostera af Alara og 3 af Conflux og verðið er bara 3000 kr. en það er það sama og boosterarnir kosta. Einnig fá handahófsvaldir þátttakendur sem ekki komast í topp átta verðlaun.
Hemmi.