Hér er ég með tillögur fyrir einni hús-reglu sem gæti verið gaman að prófa:

Mér finnst skrítið að Goblinar séu með strength 3. Það þýðir að þeir séu jafn sterkir og Orkar! Hmm.. það væri sniðugra, finnst mér, að þeir væru með 2 í strength (Þegar maður ber orkamódel saman við goblinamódel þá finnst manni það bara fáránlegt að þeir séu með sama strength!) en væru með special rule sem leyfði þeim að berjast eins og í 2 rönkum (þá græddu þeir ekkert á spjótum) ef þeir outnumberuðu, sú regla gæti heitið swarm eða eitthvað. Ef þið eruð að pæla í hvaðan ég fékk þessa hugmynd ættuð þið að skoða eina mynd í orkabókinni þar sem einhverjir goblinar eru að lumbra á Empiregaurum með því að “swarma” þá. Brjánn eða einhver annar Orkmeister gæti hugsanlega sagt ykkur hvar í bókinni hún er.

Vonandi hafið þið haft gaman að þessu og það væri skemmtilegt ef einhver myndi prófa þetta og segja mér frá :)<br><br>__________________________________________________________________________________________________

<b>ramax skrifaði:</b><br><hr><i>Hin sorglega staðreynd er að 90 % mannkyns eru andlausir og menningarsnauðir plebbar sem hlusta á FM popptónlist, horfa á blockbuster-videó-drasl frá Hollywoodmaskínunni, og eyða lífi sínu annars í að eltast við frumþarfir (kynlíf, mat, spennu/afslöppun) eins og hverjir aðrir apar.
</i><br><hr>




<a href="http://kasmir.hugi.is/kreoli">Kashmir</a