Jæja, langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna.
Mig langaði að athuga hvort einhverjir hefðu áhuga á að kíkja í Nexus á föstudaginn fyrir mótið og taka nokkra bardaga, bara svona til að hita upp fyrir mótið. Ég vel föstudaginn aðallega vegna þess að einhverra hluta vegna verður ekki hægt að halda 2 daga mót, og þá er laugardagurinn augljóslega upptekinn fyrir eitthvað annað í salnum.
Ég ætla allavega að mæta, hvort sem einhver annar gerir það eða ekki, og hugsanlega mæti ég með kastalan minn, sýni einhver honum áhuga hérna….

Anyway, hlakka mikið til mótsins, og vona að við keisaraliðarnir verðum aftur 5 á móti 2 chaos spilurum eins og síðast… :)