Halló.

Ég keypti mér smá af Tyranids köllum í dag og var að spá hvernig ætti nú að standa að þessu öllu saman (límingum og málningu og þess háttar) og ætla því að spyrja ykkur að þessu;

Á að líma módelin saman áður en að maður málar þau eða er betra að mála partana sér og svo líma saman?

Litaskemu, Hvernig á maður að velja sér litaskemu eiginlega? (já ég er alger nýgræðingur í þessu :p) er einhversstaðar hægt að sjá hvaða litir passa ágætlega saman?

Og annað, þessar málningar greinar sem voru sendar inn er ekki hægt að sjá þær einhversstaðar? ég sé þetta ekki neinsstaðar hérna :P

Vona að þið getið hjálpað.

Takk fyrir.