Jæja, eftir 4 daga þá verð ég búin í prófum. Eftir það mun ég halda til Rvk og gera mín “ritual” innkaup með pompi og pragt.
EN.
Ég væri alveg til í að spila eitthvað meðan ég er þarna. Ég hef lítið sem ekkert spilað Warhammer. Ég kenndi mér 40K en hef enga eiginlega reynslu. Ég kann lítið sem ekkert í FB. En mig langar að fá mér reynslu í þessu, annars mun ég aldrei geta neitt.
Fyrst að ég bý út á landi þá er ég lítið inn í Warhammer samfélaginu þarna í Rvk. Eru einhverjir að hugsa það sama og ég og ætla að spila eitthvað á þessu tímabili? (16 maí - mesta lagi 25 maí).<br><br>“See you on the flipside”

PrOtOcoN