Nú ætla ég að skrifa örlittla grein um herinn Sisters of Battle. Vona að ykkur líkar greinin og góða skemmtun!

Sisters of Battle (Systur í Bardaga)

Her sem samanstendur aðeins af stríðskonum sem helga sig verndun
mannkynsins frá hvaða ógn sem er. Þjálfaðar frá fæðingu og í það stakk búnar til að takast á við hvaða ógn sem er geta verið fundnar berjast við hlið hinum keisaralegu varðsveitunum eða verið að berjast sjálfstætt til varnar þeirra eigin trú um alla vetrarbrautina.

Heilu herdeildirnar samanstanda af sveitum bardagasystra sem trúa djúpt á keysaralegu trúarhópana sem gefur þeim þá staðfestu að berjast áfram til að viðhalda trú sinni gegn bæði ógeðslegum geimverum eða öðrum mennskum herjum. Hver sveit bardagasystra geta haft þungavopn og má þá nefna að bardagasysturnar eru einkar hrifnar af eldvörpum sem þær nota við að brenna andstæðinga til grunna.

Þær eru kannski ekki eins sérhæfðar og harðar af sér eins og Geimgönguliðarnir (Space marines) eða her þeirra er kannski ekki eins mannmikil og Keisaralegu Varðsveitirnar (Imperial Guards) en með gífurlegum skotstyrk þeirra og þeirra óhagganlegu trú þá geta þær kramið hvaða her undir fótum sér.