Hvað er hægt að kaupa í LOTR spilinu í Nexus?

Við erum 4 félagarnir sem eigum heima á Akureyri og ætlum að byrja að spila LOTR spilið. Okkur vantar að vita hvað sé hægt að kaupa þar og fyrir hvað mikið.

Við höfum verið að pæla í að panta þetta bara frá Bretlandi, því módelin þar eru alveg subbulega ódýr en þá aftur á móti þyrftum við að fá þetta sent sem gæti kostað sitt.

Ef einhver veit eitthvað um hvað það kostar að fá þetta sent frá Bretlandi þá væri sá aðili vinsamlegast beðinn um að segja mér það. ;)


kv, Jón.