Besta límið til að líma saman warhammer kalla er Super Attack. Það er alveg ótrúlega gott, maður á að láta bara pínulítið í einu og það límist alltaf allt saman. Svo er líka hellingur í hverri túpu.
Þetta Bison tonnatak er bara rusl.

Svo er líka gott að nota Kährs parketlím á stór, pirrandi tinmódel sem finnst það vera hin besta skemmtun að brotna (til dæmis Slann!). Eini gallinn við parketlímið er sá að maður þarf að halda pörtunum saman í 10 MÍNÚTUR, en vittu til, módel á aldrei eftir að brotna aftur ;)

Super attack fæst á Olís bensínstöðinni í Hamraborg og mögulega víðar.
Kährs parketlímið fæst hinsvegar í Byko.


Kveðja
Kreoli<br><br>Ég hata skammstafanir!!!