Sælir. Ég hef verið að undirbúa mig fyrir nýjan her síðustu vikur. Eftir að ég sá nýja Daemon Prince-inn (http://games-workshop.com/news/us/preview.htm) varð ég harðákveðinn! Þvílíkur moli!
Ég ætla að taka strák og converta hann, kemur í ljós hvernig til tekst. Hugmyndin að gera hann eitthvað viðbjóðslegri, datt í hug að hafa hálft andlitið hreistrað og skemmt o.s.frv.

En hvað um það, er einhver reynslubolti þarna, sem getur sagt mér eitthvað fróðlegt um hvernig er að spila Nurgle?
Planið er að hafa Daemon Prince sem hershöfðingja (ég veit, hann á eftir að verða aðal skotmarkið, hann er bara svo svalur!) a.m.k. eina sveit af Plaguebearers, 5 eða fleiri Knights og 1-2 sveitir Warriors, líklega Marauders líka. Nurglings held ég að séu skylda í svona her, þó ekki væri nema af því þeir eru svo fallegir :-) Kannski Chaos Furies?

Ef einhver hefur hugmyndir/reynslusögur, þá væri ég lukkulegur með að heyra í ykkur.

Siggi G
Húsavík

www.warpchylde.tk

www.warpchylde.iwarp.com
www.warpchylde.iwarp.com