undankeppni Íslandsmóts CATAN Þá er komið að því loksins.

Undankeppni Íslandsmótsins í CATAN verður laugardaginn þann 27.mars kl.13:00. Keppnin fer fram í Vinabæ, Skipholti 33. Átta efstu sætin veita þátttökurétt á Íslandsmótinu sem haldið verður í apríl (auglýst síðar).
Íslandsmeistarinn ásamt þeim sem lendir í 2.sæti vinnur sér inn helgarferð á stærstu spilasýningu í heimi sem og keppnisrétt á Heimsmeistaramótinu í CATAN í Þýskalandi október 2004 (kannski októberfest í leiðinni?)

Skráning er hafin og lýkur reyndar í dag, 25.mars svo þið verðið að hafa hraðar hendur. Hún fer fram á www.spil.is og í síma 5547700. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer. Skráningargjald er 500kr. og greiðist við innganginn. Ekkert aldurstakmark, en eina skilyrðið er að þátttakendur verður að kunna spilið áður en þeir mæta.

ATH! Allir keppendur verða leystir út með veglegri gjöf.

kv,
jericho