Ég ákvað að skrifa þessa grein eftir að ég sagði á kork hérna á 40K væri orðið bull og fékk svar um að ég væri ekki með sjálfsvirðingu ef ég segði svona!

Warhammer 40.000
Þetta spil er farið út í vitleisu, í raun var það farið það eftir að Necron codexið kom út því þá fóru Guðir að sjást andskoti oft ráfandi um á vígvellinum drepandi alla og einginn gat gert neitt (ekki einusinni þeir sem áður voru kallaðir Mega gaurar, þeir urðu bara traðkaðir niður) plús það að herinn var ekkert að verri sort.
Síðan kom Óreiðu Geimgönguliða bókin og ekki skánaði það, þá fengu Chaos enþá betri gaura og endalaust marga möguleika á að nauðga þessu og jafnvel án þess að pæla mikið ( hvað með þessa Heims Étara! ).
Bætum nú aðeins um “Nefndar Persónur” (Special Caracters). Það byrjaði held ég í Tiranid bókinni að Karakterar voru byrjaðir að fá það að það þirfti ekki leyfi andstæðings! Síðan hélt þetta áfram, Tau fengu sitt codex ( sem er “að mér sagt ekki ostur.. en ég trúi því svona tæplega” ) og þar þurfti ekki leyfi fyrir SC að mig mini. Síðan komu Necrons! Þá fór þetta út um þúfur ! þeir fengu guði sem þeir máttu taka eins og þeir vildu ! ekkert takmark á því! sem er bara bull ! ekki skánar það, í óreiðu bókinni kom þetta líka, einginn “Kall” með hindrun …. ég veit hinsvegar ekki eins mikið um hve góðir þeir eru á vígvellinum en samt HELL. Ég segi að það ætti bara að bana þá alla saman alltaf, engar undantekningar.
Og enn ein kvörtun! Space Marines ! Þeir eru bókstaflega ALLS Staðar, 75% spilara eru SM! þetta er orðið bardagi milli SM (T4 S 3+) þeir eiga að vera sérsveitir Keisaraveldisins en það mætti halda að þeir væru fleiri en Keisaraverðirnir !! Þetta er bara algert kjaftæði orðið !!! Fólk vinsamlegast spila eithvað COOL ekki alltaf það besta ! sumir hafa afsakanir ( svona eins og Lee með CSM:WE herinn sinn og Fróði með SM:SW fyrir að vera með Mega flotta heri! … og Theo víst lika ;) ) an annars er ég ekki að fyrigefa neinum SM spilara. Þið getið alveg keypt eithvað annað enþá svalara!
Reglur !! eru orðnar frekar einhæfar …. því miður … Návígi er orðið ALLT of mikilvægt ! það er orðið þannig að það eru 2 návígis umferðir á meðan það er ein skotumferð… að vísu er aðeins held ég búið að laga það í nýu reglunum… en þetta er bara bull, allir brummandi í nýu fínu Nashirningonum sínum og hoppandi út á fullri ferð og drepa alla í návígi !!

Endilega komið með eithvað til að hressa uppá 40K á móti mér en hafið góð rök ! Ég vill geta spilað “helt Normal” leik til að skemmta mér í staðinn fyrir að sjá allt þetta rugl í gangi !




P.S. Þær stafsetninga villur sem eru hér eru innsláttar villur og ef þið hafið eithvað að segja um hvernig ég skrifa þá meigið þið eiga ikkur og ikkar þráhiggju um stafsetninu!
Opinions are like assholes, everybody got one and they all stink!