jæja………þessi saga byrjar svo.

Ég var á leið til Akureyrar þegar ég fann út að ég vissi að ég hafði fengið útborgað og mér langaði að gera eitthvað annað við hann en að kaupa fleiri “Warhammer 40.000 Chaos marines Night lords” því ég er þegar með nokkra í vinnslu og ég myndi ekkert geta málað þá því ég var að fara að mála “Warhammer Fantasy Chaos Marauders” með frænda mínum.

Ég skundaði niður í Nexus með 8000 kall í vasanum með enga vitneskju um hvurn andsk….. ég átti að kaupa.

Ég stíg inn og sé Júlíus við kassann, ég labba í kringum stóra sýningar kassann svona skrilljón sinnum leitandi að einhverju til að kaupa. Ég skoða myndasögurnar og sé þarna Wolverine: Origin, mér hafði langað mikið í þessa bók svo ég keypti hana fyrir einhverja þúsundkalla,

þegar ég er búinn að kaupa Wolverine bókina þá labba ég inn í Spilasalinn í mestu makindum og les bókina og virði fyrir mér myndirnar í henni.

Núna langar mig að kaupa eitthvað meira fyrir afganginn svo að ég sting bókinni í hvíta pokann og labba aftur inn í búðina.
þegar ég kem aftur inn þá lítur Júlíus á mig með þeim svip “bíddu…….var hann eki hér áðan?” en núna checka ég á Warhammer Fantasy fyrir frænda minn því hann kemst ekki oft hingað vegna vinnunnar, ég fann þessa flottu Chaos hestamenn handa honum, svo lít ég við og sé þennan kassa sem stendur MARVEL HEROCLIX á, ég hugsa með mér “hmmm hvað er þetta” og svo finn ég út að þetta er nýtt spil sem er spilað á einhverskonar mottum þannig að ég býst við að þessi grein eigi heima hé.

Í dag fór ég svo niður í nexus og keypti mér 2 booster packa og fékk bara mjög flott kalla og allt í góðu með það og svo er bara að fara að spila þetta á laugardögum og gá hvort ég get eitthvað í þessu spili

jah ég vona að ég hafi ekki slátrað ykkur úr Leiðindum en munið að þið eruð ekkert skyldug/ir til að lesa þetta
Bro's before Ho's