Hér kemur smá fluff um Militia Empire hermennina mína.

Aðalgaurar:

Capt. Jón ,,Wonn-Æ“ Jónsson
Jón er captain í Militia sveitinni. Það er samt varla hægt að segja að hann sé eikker afburða hermaður því að fóstbróðir langaafa hans var Captain og hann vildi endilega láta Jón taka við sér. Reyndar sagði hann það ekki í eigin persónu, heldur skrifaði bréf sem fannst heima hjá Jóni. Það var samt sagt að Jón hafi skrifað það því rithönd hans þekktist. Og auk þess kunni fóstbróðir langafa hans ekki að skrifa þannig að….En Jón er soldill Wannabe gaur. Hann er t.d. kallaður ,,Wonn-Æ” því að hann sagðist hafa misst augað í stríðinu milli Empire og Chaos. Sumir segja bara reyndar til að rakka hann niður að hann hafi dottið á hrífu 5 ára,en það er haugalygi. En kannski mestu afrek Jóns eru stríðið á móti Gobbum og Chaos, eftir stríðið á móti Gobbunum þá var hann einmitt hækkaður um tign. Hann á sverð sem hann kallar ,,Orkbani“, einnig á hann skammbyssu sem hann kallar: GreitGönn!


Banner:Sven Flag-Sörensen
Sven lærði að halda á fána þegar hann mótmælti verði á brynjum í vetur. Þar hélt hann reyndar á skilti en það er sama tæknin. Hann er með engar tennur í neðri góm, hann missti þær í bardaganum um Mikla-Skóg, við Dark-Elves. Það var eikker rosa skytta sem skaut af löngu færi og bara: BÚMM! beint í mark, gómurinn farinn, þannig að núna hefur hann bara gulltennur í neðri góm, leynivopn hans er skór sem hann er í,sem hann fer aldrei úr,hann sparkar honum af sér og úr honum kemur viðbjóðsleg fýla(6=d6 hehe), bara Shamaninn sem kreystir vörturnar getur brugðist við honum.

Leiðtogi skyttnanna: Árni ,,Búllsæ” Gretzky
Hann er ungur strákur, ekki nema 15 ára. Hann æfðist mikið þegar hann fór með pabba sínum, Karli ,,Horsæ“. Einnig bjó hann alveg við hús ræningja, og þurfti því oft að vakna um nótt og skjóta. Hann gekk í herinn fyrir 2 mánuðum, því hann strauk að heiman. Hann var fyrst settur í sveit sem hét, Daz Bleik´uns. En komst fljótt að því að í henni voru bara öfugguggar, þegar hann beygði sig eftir sápu…jæja tölum eikkað annað. Hann var þá fluttur í sveitina Úlfarnir og var fljótt hækkaður í tign þegar þáverandi leiðtogi dó. Hann á ,,sniper” sem hann kallar ,,Sælent Azzasinn“. Einnig geymir hann rýting í skónum sem hann kallar ,,Írkutta”.

Jæja þetta var sona smá djók fluff um Militia sveitina mína, Það eru engar hetjur í henni beint, bara sona aðalgaurar.


Q-dogg
GoodFella